

Hvernig viltu styrkja?
Barnaheill
Barnaheill eru barnaréttindasamtök sem vinna að því að skapa börnum betri og öruggari heim, með áherslu á að tryggja réttindi og velferð þeirra. Við sinnum fjölbreyttum verkefnum bæði á Ísland og á alþjóðavettvangi.
Með Barnasáttmálann og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi hafa helstu áherslur okkar verið barátta gegn einelti og ofbeldi á börnum. Við höldum úti fræðslu og forvörnum, bregðumst við mannúðarkrísum, veitum þróunaraðstoð og leggjum ríka áherslu á að raddir barna heyrist.
Við teljum að með því að tryggja velferð barna aukist líkur á velfarnaði þeirra síðar á lífsleiðinni.