

Þú getur styrkt Reykjalund sem Hollvinur með mánaðarlegu eða árlegu framlagi, eða lagt starfinu lið með stökum styrk.
Hollvinasamtök Reykjalundar
Hollvinasamtök Reykjalundar eru mikilvægur bakhjarl í þágu endurhæfingar á Reykjalundi. Í samtökunum er fjöldi einstaklinga sem greiðir hóflegt árgjald í þágu starfseminnar.
Með því að gerast Hollvinur Reykjalundar leggur þú þitt af mörkum til að fleiri komist fyrr út í lífið á ný.
▪ Reykjalundur í Mosfellsbæ er stærsta og ein mikilvægasta endurhæfingarmiðstöð landsins.
▪ Á ári hverju njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi og öðlast þar með bætt lífsgæði, færni og betri vinnu- og sjálfsbjargargetu eftir áföll eða veikindi.
▪ Reykjalundur hefur starfað frá miðri síðustu öld og stutt fólk út í lífið á ný.
▪ Mikil samfélagsleg verðmæti felast í starfseminni á Reykjalundi og endurhæfing er þjóðhagslega hagkvæm.
▪ Reykjalundur er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins þó starfsemin sé ekki á fjárlögum ríkisins.
▪ Reykjalundur er rekinn á óhagnaðardrifnum grunni og greiðir ekki arð.
▪ Reykjalundur starfar skv. lögum um veitingu heilbrigðisþjónustu og þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands, sem greiðir fyrir endurhæfingu en ekki húsnæðiskostnað.
▪ Reykjalundur er í eigu SÍBS og er rekinn fyrir sjálfsaflafé, m.a. tekjum af happdrætti SÍBS, sem fara minnkandi ár frá ári.
▪ Hollvinir Reykjalundar styðja við starfsemina með öflun fjár sem veitt er í ýmiskonar verkefni í endurhæfingastarfinu á Reykjalundi, sem ella væri ekki hægt að sinna.