

Hvernig viltu styrkja?
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Mæðrastyrksnefnd eru samtök sem styðja við einstæða foreldra og forsjáraðila, öryrkja, eldri borgara og aðra sem hafa lítið á milli handanna með matar- og fataúthlutunum auk annarra styrkja.
Fólk sem þarf á stuðningi að halda getur komið til Mæðrastyrksnefndar tvisvar í mánuði og fyllt poka af matvælum og annarri nauðsynjavöru. Í hverjum mánuði leita um 800 einstaklingar og fjölskyldur til Mæðrastyrksnefndar og í aðdraganda jólahátíðanna hækkar svo tala upp í ríflega 2000.
Sjálfboðaliðar sem starfa við úthlutanir hjá Mæðrastyrksnefnd hafa margar hverjar gegnt þessu hlutverki í mörg ár og eru fulltrúar þeirra kvenfélaga sem standa að Mæðrastyrksnefnd; Thorvaldsensfélagið, Hvítabandið, Félag háskólakvenna, Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, Kvenfélag Alþýðuflokksins og Félag framsóknarkvenna.
Með því að gefa andvirði poka af matvælum leggur þú þitt af mörkum við að styðja þau sem þurfa á því að halda. Sá stuðningur skiptir sköpum.