

Matthildur - samtök um skaðaminnkun
Reykur, skaðaminnkandi þjónusta Matthildarsamtakanna, stendur nú frammi fyrir því að neyðast til að leggja niður þjónustu sína í sumar. Fjárhagslegur stuðningur stjórnvalda hefur verið afar takmarkaður og nemur nú innan við 10% af rekstrarkostnaði.
Reykur er sérhönnuð þjónusta og sú eina sinnar tegundar hér á landi fyrir einstaklinga sem glíma við þungan vímuefnavanda. Verkefnið veitir skaðaminnkandi þjónustu, ráðgjöf og eftirfylgni og er markmiðið skýrt: að draga úr ótímabærum dauðsföllum, koma í veg fyrir að vandi einstaklinga þyngist og styðja fólk í átt að jákvæðum breytingum og bata.
Þjónustan er veitt að kostnaðarlausu og nær til einstaklinga um allt land. Þjónustan er veitt á vettvangi tvisvar í viku á höfuðborgarsvæðinu (í ómerktum bíl) og einnig með símaráðgjöf og stuðningi alla virka daga frá kl. 12–17.
Til að halda starfseminni áfram leitum við nú til einstaklinga og fyrirtækja og hvetjum fólk til að leggja þessari mikilvægu þjónustu lið. Fyrir okkar skjólstæðinga er þessi þjónusta lífsnauðsynleg og fyrir marga þeirra er hún fyrsta skrefið í átt að bata.