

Hvernig viltu styrkja?
Rótin
Rótin er málsvari kvenna og kvára sem eiga sögu um áföll og/eða vímuefnavanda og beitir sér fyrir mannréttindum og velferð þeirra.
Meðal markmiða félagsins er að beita sér fyrir faglegri stefnumótun sem hefur að leiðarljósi skaðaminnkun, mannréttindi og áfalla- og kynjamiðaða þjónustu. Rótin stendur að fyrirlestrum, námskeiðum og ráðstefnum.
Félagið rekur meðal annars Konukot, sem er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík, samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg.
Fjármunum sem safnast er varið í mannréttindabaráttu fyrir konur og kvár með vímuefnavanda og áfallasögu ásamt uppbyggingu jafningjastuðnings og lágþröskuldaþjónustu ásamt því að styðja við rannsóknir til góða fyrir konur og kvár í viðkvæmri stöðu.