

Hvernig viltu styrkja?
Þú getur lagt þitt að mörkum með því að styrkja gríðarlega öflugt starf Ungra umhverfissinna mánaðarlega. Félagið rukkar ekki félagsgjöld og eru því frjálsir styrkir nauðsynlegur grundvöllur reksturs þess.
Félagið hefur stækkað mikið og hratt á undanförnum árum og starfsemin orðin víðfeðm. Því fylgir tilheyrandi kostnaður og duga rekstrarstyrkir frá ríkinu ekki lengur. Verkefni eins og Sólin - einkunnagjöf fyrir Alþingiskosningar, Loftslagsverkföllin Framhaldsskólakynningar, Upplýsingafundir um loftslagið, Loftslagsfestival, #AðgerðirStrax, Vísindaferðir, COP o.s.frv.
Okkar skoðun er sú að ungt fólk í sjálfboðavinnu ætti ekki að þurfa að sjá um almennan rekstur félagasamtaka, eins og að sinna fjáröflun, styrkumsóknum, bókunarstörfum o.þ.h, heldur ættu að fá frelsi til þess að vera skapandi. Með þínu framlagi er hægt að útvista þessu basli til starfsfólks.
Margt smátt gerir eitt stórt!
Með fyrirfram þökkum,
Stjórn Ungra umhverfissinna.