Hvernig viltu styrkja?

Vatnaskógur

Gefðu börnum ógleymanlegt sumar

Í Vatnaskógi fá börn að upplifa ævintýri og vináttu og takast á við uppbyggileg verkefni í fallegri náttúru. Þar verða til minningar sem endast ævina og styrkja sjálfstraust, félagsfærni og líðan.

Með þínum stuðningi getum við haldið áfram að byggja upp aðstöðu, efla starfið og tryggja að sem flest börn fái tækifæri til að taka þátt.

Nú tökum við höndum saman og hjálpum til við að ljúka byggingu hins nýja matskála í Vatnaskógi.

Nýr matskáli hefur verið í byggingu síðan 2022 og er húsið nú fullklárað að utan og innréttingavinna hafin að innan. Stefnan er að klára bygginguna fyrir sumarið 2027.

Nýr matskáli mun gjörbreyta allri aðstöðu til hins betra, hann mun rúma mun betur þann mikla fjölda gesta sem sækja staðinn.

Þitt framlag skiptir máli. Takk fyrir að styðja.

Skógarmenn, Áfram að markinu!